| |
Miðvikudaginn 25. júní kl. 11 verður stofnfundur rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun (RannUM) við Kennaraháskóla Íslands. Stutt athöfn verður í stofu H-001 þar sem undirritaður verður samningur um stofnun og rekstur stofunnar. Aðalmarkmið rannsóknarstofunnar er að auka og efla menntarannsóknir og þróunarstörf sem tengjast upplýsingatækni og miðlun. Upplýsingatæknibyltingin hefur valdið gríðarlegum breytingum sem móta störf og lífsstíl fólks og hvergi sér fyrir endann á. Áhrif á nám og skólastarf hafa einnig verið töluverð. Innlendar og erlendar rannsóknir benda til að tölvuvæðing grunnskóla sé langt komin hér á landi en nýting upplýsingatækninnar mun síður. Mikil þróun hefur engu að síður átt sér stað í fjarnámi og -kennslu, ekki síst í kennaramenntun og á framhaldsskólastiginu. Kortleggja þarf þróun í nýtingu upplýsingatækni á öllum skólastigum, kanna m.a. áhrif hennar á uppeldi og skólastarf, kennara og nemendur, hvernig efla má færni nemenda og kennara á sviðinu, skoða möguleika og tálma sem í tækninni felast og þau vandamál sem henni geta fylgt. Brýnt er að bæta og auka samstarf einstaklinga, samtaka og stofnana hvað varðar rannsóknir og þekkingarmiðlun. Einnig þarf að efla samstarf um nýsköpun, þróun og mat, t.d. á stafrænu námsefni og fræðsluefni fyrirtækja, stofnana og safna, afþreyingarefni eða leikjum, búnaði sem stuðlar að tæknilæsi á meðal barna og unglinga og margvíslegum hugbúnaði til skráningar, samskipta og miðlunar. Rannsóknarstofan stefnir að því að skoða þarfir og safna hugmyndum að rannsóknum og þróunarverkefnum á vettvangi. Sett verður fram áætlun sem felur í sér þjálfun háskólanema og ungs vísindafólks í nánu samstarfi við skóla og atvinnulíf. Stefnt er að öflugu samstarfi innlendra og erlendra aðila af mismunandi fræðasviðum.
Áhugafólk um rannsóknir á þessu sviði er hvatt til að mæta. Þeir sem vilja gerast stofnaðilar snúi sér sem fyrst til Sólveigar Jakobsdóttur, soljak@khi.is |
| |
Starfshópur um fjarnám var að ganga frá lokaskýrslu sinni með tillögum um endurbætur á staðlotum og leiðir til að draga úr brottfalli. Við munum kynna skýrsluna á fundi í Bratta 29.apríl, kl. 14.30. Hér er afurðin frá okkur - http://soljak.khi.is/kennfjar/skyrslaloka.pdf Framhaldsnemendur við KHÍ í námskeiðinu Fjarnám og -kennsla gerðu verkefni í janúar og febrúar þar sem þeir settu sig í spor starfshópsins og komu með eigin tillögur. Er þeim þakkað kærlega fyrir góðar hugmyndir og ábendnigar sem þessi starfshópur vann úr og nýtti. Gaman væri ef nemendur hefðu tök á að mæta á fundinn (fundarboð hefur á þessum tímapunkti verið sent á kennara við skólann). |
| |
Föstudaginn 4. apríl nk. munu Bókasafn Háskólans á Akureyri, kennaradeild HA og 3f, standa fyrir fræðslufundi um upplýsingatækni í skólastarfi. Fræðslufundurinn verður haldinn í stofu L201 í Háskólanum á Akureyri við Norðurslóð kl. 13:30-17:00. Þátttaka er öllum heimil og án endurgjalds en vegna skipulags er óskað eftir að þátttakendur skrái sig, sjá nánar á vef 3f http://www.3f.is |